Erlent

Dýrasti veitingastaður heimsins

Bandaríska tímaritið Forbes hefur verið að leita að dýrustu veitingastöðum heimsins, og birt yfir þá lista. Sá allra dýrasti er Aragawa í Japan. Þar kostar máltíðin 22 þúsund krónur á mann, fyrir utan vín og þjórfé.

Ekki er hægt að segja að matseðillinn sé fjölbreyttur. Eini rétturinn sem hægt er að fá á þessu veitingahúsi er buff með pipar og sinnepi. Aragawa auglýsir ekki og er ekki með neina heimasíðu. Og það er ekki hverjum sem er hleypt inn. Til dæmis er erfitt fyrir vesturlandabúa að fá borð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×