Erlent

Ætlar ekki að vera viðstaddur þingsetningu

Moshe Katsav, forseti Ísraels.
Moshe Katsav, forseti Ísraels. MYND/AP

Moshe Katsav, forseti Ísraels, ætlar ekki að vera viðstaddur þingsetningu ísraelska þingsins í dag. Fjöldi þingmanna hafði hótað því að ganga út ef Katsav mætti.

Lögreglan í Ísrael hefur krafist þess að Katsav verði ákærður fyrir nauðganir. Í yfirlýsingu sem lögreglan sendi út frá sér í gær segir að óskað hafi verið eftir því að saksóknari ákæri forsetann fyrir nauðganir og kynferðislegt ofbeldi gegn fjölda kvenna. Lögreglan hefur einnig sannanir um að Katsav hafi brotið lög þegar hann náðaði dæmda sakamenn og að hann hafi gerst sekur um ólöglegar hleranir.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×