Erlent

Katsav sakaður um nauðganir

Ísraelska lögreglan telur að nægilegar vísbendingar séu fyrir hendi til að ákæra Moshe Katsav, forseta landsins, fyrir nauðganir, kynferðislega áreitni, umboðssvik og símahleranir. Tíu konur eru sagðar hafa orðið fyrir barðinu á honum; tveimur þeirra á að hafa verið nauðgað. Til að hægt sé að rétta yfir forsetanum verður ísraelska þingið að svipta hann friðhelgi. Katsav var hvergi sjáanlegur við þingsetningu í dag enda höfðu margir þingmenn hótað að sniðganga athöfnina væri hann viðstaddur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×