Erlent

Þrír Svíar létust í flugslysi við Svíþjóð

Þrír Svíar fórust þegar fjögurra sæta einkavél þeirra hrapaði í hafið um 30 kílómetra suðaustur af Trelleborg í gærkvöldi. Áhafnir á þyrlum frá Þýskalandi, Danmörku og Svíþjóð hafa fundið brak úr vélinni sem var á leið frá Berlín til Borås í Svíþjóð. Ekkert er vitað um orsakir slyssins en á flugradar sást hún hrapa úr þrjú þúsund feta hæð lóðrétt í hafið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×