Erlent

Bandaríkjaforseti staðfestir frumvarp um yfirheyrsluaðferðir

George Bush, Bandaríkjaforseti, staðfesti í dag lagafrumvarp þar sem skilgreint er hvað leyfist við yfirheyrslur á grunuðum hryðjuverkamönnum. Frumvarpið skilgreinir einnig hvernig rétta skal yfir þeim. Markmiðið með lagasetningunni er að tryggja það að mannréttindi fanganna séu virt en samt er að finna ákvæði í þeim sem takmarka rétt þeirra til að kæra varðhald þeirra og jafnvel fá því hnekkt.

Hæstiréttur Bandaríkjanna úrskurðaði í júní að skipan herréttar í málum fanga í Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu færi gegn bandarískum lögum og ekki síður alþjóðalögum. Undirbúningur lagafrumvarpsins hófst þá þegar. Talsmaður bandarískra stjórnvalda sagði í dag að undirbúningur vegna réttarhalda yfir föngum í Guantanamo-fangabúðunum myndi nú hefjast. Vonast er til að hægt verði að rétta innan tíðar yfir Khalid Sheikh Mohammed, sem grunaður er um að hafa skipulagt hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin 11. september 2001.

Um leið og Bush Bandaríkjaforseti undirritaði lögin í dag sagði hann þetta eitt fárra skipta þar sem forseti Bandaríkjanna undirritaði lög, fullviss um það að þau myndu leiða til þess að mannslífum yrði bjargað. Hann sagði að yfirheyrslur bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, yfir grunuðum hryðjuverkamönnum hefðu reynst ómetanlega og ný löggjöf myndi staðfesta vinnuaðferðir CIA.

Samkvæmt nýju lögunum eru yfirheyrsluaðferðir bannaðar ef þær geti talist stríðsglæpir. Bandaríkjaforseta er heimilt að ákveða hvaða aðrar yfirheyrsluaðferðir teljist leyfilegar.

Fjölmargir fangar eru í haldi Bandaríkjamanna í Guantanamo-fangabúðunum. Eftir er að rétta yfir þeim öllum. Samkvæmt nýju lögunum verður þeim leyft að sjá einhver sönnunargögn sem liggi fyrir gegn þeim, en ekki öll. Mannréttindasamtök segja lögin ekki tryggja réttindi fanga.

Varnarmálaráðuneytið bandaríska hefur ákært 10 fanga og undirbýr ákærur á hendur 65 til viðbótar. Að sögn bandarískra yfirvalda eru um 450 fangar í Guantanamo-fangabúðunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×