Erlent

Gerði gat á Picassoverkið

Eitt verðmætasta málverk í heimi, Draumurinn eftir Pablo Picasso, er stórskemmt eftir að eigandi þess rak í það olnbogann af miklum krafti. Steve Wynn, spilavítiskóngur frá Las Vegas, hafði rétt nýlokið við að selja verkið fyrir metfé, eða sem nemur 9,4 milljörðum íslenskra króna, þegar hann varð fyrir því óláni að reka sig svo harkalega í það að stórt gat myndaðist í því miðju. Kaupsamningnum var vitaskuld rift og Wynn hefur komið verkinu í hendur forvarða sem freista þess nú að stoppa upp í gatið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×