Erlent

Fatah- og Hamas-liðar ræðast við

Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, ræðir við fréttamenn í Ramallah á Vesturbakkanum í dag.
Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, ræðir við fréttamenn í Ramallah á Vesturbakkanum í dag. MYND/AP

Fulltrúar Fatah-samtakann Mahmouds Abbas, forseta Palestínumanna, og Hamas-samtakann, sem sitja í heimastjórn Palestínumanna, áttu í kvöld fund á Gaza-svæðinu til að ræða aukin átök milli liðsmanna þessara tveggja samtaka. Óttinn við borgarastyrjöld er mikill að sögn ónafngreinds fulltrúa sem sat fundinn. Það voru háttsettir fulltrúar samtakanna sem ræddust við en þetta er fyrsti fundur háttsettra fulltrúa þessara fylkinga í margar vikur.

Til átaka hefur komið milli liðsmanna Fatah og Hamas vegna baráttu fylkinganna um völd á landsvæði Palestínumanna. Til skotbardaga hefur komið á Gaza-svæðinu síðustu vikur sem hafa kostað minnst 19 mannslíf.

Abbas forseti sagði í dag að hann myndir taka ákvarðanir um framtíð og örlög heimastjórnar Hamas-liða og taka á því öngstræti sem viðræður fylkinganna tveggja um skipan eins konar þjóðstjórnar væru komnar í. Þær viðræður sagði hann að renna út í sandinn vegna þess að Hamas-liðar neituðu að breyta viðhorfi sínu Ísraels-ríkis sem þeir viðurkenna ekki.

Abbas hefur gefið til kynna að hann gæti gripið til þess ráðs að reka heimastjórnina og sagt að hann myndi leita stuðnings Palestínumanna við aðgerðir sínar með þjóðaratkvæðagreiðslu.

Forsetinn sagði að teknar yrðu ákvarðanir um skipan stjórnar sem væri bundin arabískum og alþjóðlegum lögum svo hægt yrði að aflétta umsátri alþjóðasamfélagsins um landsvæði Palestínumanna og linna þjáningar þeirra.

Saeed Seyman, innanríkisráðherra í heimastjórn Hamas, segir ljóst að Hamas-liðar myndu líta á slíkar aðgerir sem valdarán.

Hamas-liðar tóku við völdum í mars en þá gripu Bandaríkjamenn og Evrópusambandið til refsiaðgerða. Bein aðstoð var stöðvuð, þar með talið fjárstuðningur sem heimastjórnin treystir á. Bandaríkjamenn, Evrópusambandið og Ísraelar flokka Hamas sem hryðjuverkasamtök. Þau verði að viðurkenna tilverurétt Ísraelsríkis, afneita ofbeldi og virða þá friðarsamninga sem séu í gildi áður en refsiaðgerðum verði aflétt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×