Erlent

Madonna svarar fyrir sig

Bandaríska poppsöngkonan Madonna segir ekkert athugavert við hvernig hún stóð að ættleiðingu á malavískum dreng á dögunum. Faðir drengsins hefur lýst því yfir að hann hafi ekki áttað sig á þýðingu ættleiðingarskjalanna. Í viðtali við Opruh Winfrey, sem sýnt verður í Bandaríkjunum í kvöld, sagði Madonna hins vegar að fjölmiðlar hefðu greinilega fengið föðurinn til að halda þessu fram. Söngkonan kvaðst ekki skilja hvers vegna hún væri gagnrýnd fyrir að gera góðverk og hún vonaði jafnframt að fjaðrafokið yrði ekki til að aðrir hættu við að ættleiða afrísk börn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×