Erlent

Hneyksli í uppsiglingu í Þýskalandi

Hneyksli virðist í uppsiglingu í Þýskalandi eftir að dagblaðið Bild birti myndir af brosandi þýskum friðargæsluliðum í Afganistan að leika sér með hauskúpu. Á einni myndinni má sjá einn friðargæsluliðann halda á höfuðkúpunni upp að kynfærum sínum.

Franz Josef Jung varnarmálaráðherra sagði á blaðamannafundi í dag að myndirnar væru viðurstyggilegar og slík vanvirðing við látið fólk yrði ekki liðin.

Rannsókn er þegar hafin á málinu en talið er að þrjú ár séu liðin frá því myndirnar voru teknar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×