Erlent

Ofurfyrirsæta handtekin

Ofurfyrirsætan Naomi Campbell.
Ofurfyrirsætan Naomi Campbell. MYND/AP

Breska lögreglan handtók í dag ofurfyrirsætuna Naomi Campbell. Lögregla handtók hin 36 ára gömlu fyrirsætu þar sem hún var stödd í húsi í Westminster í Lundúnum. Hún var þegar færð til yfirheyrslu. Ekki er vitað hver ástæðan er fyrir handtökunni.

Talsmaður lögreglu vildi ekki staðfesta að Campbell hefði verið handtekin þar sem engin ákæra hefði verið lögð fram af hendi lögreglu í málinu. Hann staðfesti þó að kona hafi kært líkamsárás í húsinu í Westminster sem um ræðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×