Erlent

Tupperware-listaverk til sýnis

Tupperware kjóll á sýningunni í New York.
Tupperware kjóll á sýningunni í New York. MYND/AP

Tupperware er hægt að nota á margan hátt, til að geyma spagettí, til að geyma hafragraut í og hita hann, auk þess sem tupperware er notað til að halda mat ferskum. Það kann því að hljóma sérkennilega að Tupperware sé einnig notað í töskugerð eða listsköpun hvers konar.

Nýlega var haldin keppni þar sem sölumenn Tupperware voru hvattir til að nota sköpunargáfur sínar og hann ýmsa nothæfa hluti úr þessum plastílátum.

Meðal þess sem vann til verðlauna er bíl módel og samkvæmiskjóll. Hönnuðirnir koma frá fjölmörgum löndum, þar á meðal frá Frakklandi til Indlands. Sigurvegarinn hreppti 5.000 bandaríkjadali í verðlaunafé og ferð til New York.

Í ár eru 6 áratugir frá því að Tupperware var fyrst framleitt. Síðan þá hefur þessi vara ná miklum vinsældum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×