Erlent

20 Palestínumenn fallnir

MYND/AP

Til átaka kom milli ísraelskra hermanna og herskárra Palestínumanna á norður hluta Gaza-svæðisins í nótt. Minnst 5 Palestínumenn eru sagðir hafa fallið. Ísraelskir hermenn munu hafa hótað að jafna hús við jörðu þaðan sem skotið var á hermenn.

Á sama tíma féllu 3 liðsmenn Hamas-samtakanna í loftárás Ísraelshers á bil í Gaza-borg. Talsmaður hersins segir hryðjuverkamenn hafa verið í bílnum.

20 Palestínumenn hafa fallið í átökum í og við bæinn Beit Hanoun síða á miðvikudag þegar umfangsmesta árás Ísraela á Gaza-svæðinu í rúma fjóra mánuði hófst á svæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×