Erlent

Kúbverjar undirbúa 50 ára afmæli byltingarinnar

Kúbverskir hermenn undirbúa sig fyrir hersýninguna þann 2. desember næstkomandi.
Kúbverskir hermenn undirbúa sig fyrir hersýninguna þann 2. desember næstkomandi. MYND/AP

Hermenn marseruðu á götum úti í Kúbu í dag á meðan orrustuflugvélar þutu um loftin. Verið er að undirbúa hátíðarhöld fyrir 2. desember næstkomandi vegna 50 ára afmælis uppreisnar Kúbu manna og um leið er það 80 ára afmæli Fídels Kastró sem haldið verður upp á.

Á hersýningin að sýna óvinum Kúbu að þeir eru tilbúnir í hvað sem er. Líklegt er að Fídel Kastró, forseti Kúbu, eigi eftir að láta sjá sig en hann hefur haldið sig utan sviðsljóssins undanfarið vegna heilsuvandamála.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×