Erlent

Ísraelar halda árásum sínum á Gaza áfram

Ísraelskar leyniskyttur skutu tvo Palestínumenn til bana í dag og var annar þeirra tólf ára stelpa. Sex í viðbót létust í árásum Ísraela á Gazasvæðið og er talið að fjórir þeirra hafi verið vígamenn.

Stúlkan sem dó lést af einu skotsári á höfði. Talsmaður ísraelska hersins sagði að leyniskyttan hefði miðað á grunaðan vígamann en skotið hafi lent í stúlkunni þegar vígamaðurinn reyndi að forða sér. Hann sagði ennfremur að herinn myndi rannsaka málið. Hinar nýju árásir Ísraela á Gaza svæðið hafa útilokað nýtt vopnahlé milli deiluaðila.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×