Saddam Hússein dæmdur til dauða 5. nóvember 2006 12:30
Saddam Hússein, fyrrverandi forseti Íraks, var í morgun dæmdur til dauða fyrir glæpi gegn mannkyninu. Samkvæmt dómsorði verður hann hengdur. Sjíar fagna dómnum en Súnníar fordæma hann. Mannréttindasamtök segja málsmeðferðina gallaða. Dómurinn í morgun var kveðinn upp í fyrsta kærumálinu gegn forsetanum en hann var ákærður fyrir aðild að morðum á 148 manns í bænum Dujail árið 1982. Sjíar eru þar í meirihluta. Forsetinn fyrrverandi mun hafa fyrirskipað morðin eftir að reynt var að ráða hann af dögum. 7 til viðbótar voru ákærðir í málinu. 2 voru dæmdir til dauða, 1 í lífstíðarfangelsi, 3 voru dæmdir í 15 ára fangelsi og 1 sýknaður. Þegar dómurinn var kveðinn upp kallaði Hússein að Guð væri öllum æðri, óskaði Írökum langlífi og hvatti til aðgerða gegn svikurum. Samkvæmt íröskum lögum er málinu sjálfkrafa áfrýjað innan 10 daga og tekur sérstakur áfrýjunardómstóll, skipaður 9 dómurum, málið fyrir. Sú málsmeðferð gæti tekið tæpar 3 vikur. Verði dómurinn frá í morgun staðfestur þarf að framfylgja honum innan 30 daga samkvæmt íröskum lögum. Annað mál er til meðferðar fyrir dómi gegn Hússein, það eru ákærur um glæpi gegn mannkyninu vegna morða á tug þúsundum Kúrda í Anfal-herferðinni svonefndu árið 1988. Staðfesti áfrýjunardómstóll dóminn frá í morgun er ekki er ljóst hvort hægt verði að taka forsetann fyrrverandi af lífi áður en búið verður að dæma í seinna málinu. Fleiri mál eru einnig í undirbúningi sem tengjast aðgerðum gegn Sjíum og Kúrdum árið 1991, stríðinu við Írana og innrásinni í Kúvæt. Viðbrögð við dómnum hafa verið blendin. Súnníar fordæma hann en sjíar fagna. Mannréttindasamtök víða um heim hafa sagt málsmeðferðina meingallaða og hvetja til þess að skipan dómstólsins í öðrum málum verði breytt.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Svínum sleppt út í Saltvík Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Sjá meira