Erlent

Tvísýnt um úrslit

Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu í dag og kjósa til beggja þingdeilda. Baráttan er hörð og tvísýnt um úrslit. Nýjustu skoðanakannanir benda til þess að Repúblíkanar hafi saxað mjög á forskot Demókrata og ólíklegt að þeir nái meirihluta í báðum þingdeildum.

Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu í dag og kjósa til beggja þingdeilda. Baráttan er hörð og tvísýnt um úrslit. Nýjustu skoðanakannanir benda til þess að Repúblíkanar hafi saxað mjög á forskot Demókrata og ólíklegt að þeir nái meirihluta í báðum þingdeildum.

Kosið er um öll fjögur hundruð þrjátíu og fimm þingsæti í fulltrúadeild og þrjátíu og þrjú öldungadeildarþingsæti, eða þriðjung þeirra. Auk þess verður kosið um ríkisstjóra í þrjátíu og sex ríkjum. Einnig eru greidd atkvæði í nokkrum ríkjum um lagasetningu þar um hjónabönd samkynhneigðra, rannsóknir á stofnfrumur úr fósturvísum og lágmarkslaun, svo eitthvað sé nefnt. Auk þess er ekki síst litið á kosningarnar sem atkævðagreiðslu um stefnu Bush stjórnarinnar, meðal annars í Írak.

Bandaríkjaforseti hefur komið fram á kosningafundum fyrir flokksbræður sína síðustu daga og tók þátt í kosningabaráttunni fram á síðustu mínútu. Ekki voru þó allir frambjóðendur flokksins sáttir við framlag forsetans og vildu margir hverjir fjarlægja sig frá honum vegna Íraksmálsins. Sem dæmi kaus frambjóðandi flokksins til fylkisstjóra í Flórída, væntanlegur arftaki Jeb Bush í embætti, að halda síðasta kosningafund sinn fjarri forsetanum sem var mættur til að styðja flokksbróður sinn þar. Bush lét það þó ekki á sig fá og hélt fund án frambjóðandans. Forsetinn sagðist sannfærður um að Repúblíkanar færu með sigur af hólmi í dag enda væri stefna flokksins í skatta- og öryggismálum sú rétta.

Ekki virðist þó áhuginn mikill fyrir kosningunum meðal almennings og ekki búist við að kjörsókn fari yfir fjörutíu prósent.

Kannanir benda til þess að Repúblíkanar hafi saxað á fylgi Demókrata síðustu daga og ólíklegt talið að þeir nái meirihluta í báðum deildum. Líklegast er að Repúblíkanar haldi meirihluta sínum í Öldungadeildinni en Demókratar nái yfirhöndinni í fulltrúadeildinni.

Fjöldi Bandaríkjamanna hefur þegar kosið utan kjörfundar en þeir sem eiga það eftir kjósa í dag í sinni heimabyggð á þar til gerðum kosningavélum. Dómsmálaráðuneytið bandaríska hefur sent um áttahundruð og fimmtíu kosningaeftirlitsmenn til á sjöunda tug borga og bæja víða um Bandaríkin. Þeirra er að gæta þess að farið sé að lögum og reglum og grípa í taumana ef kosningavélar eru sagðar bila eða gefa sig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×