Erlent

Panama fékk sæti í öryggisráði Samneinuðu þjóðanna

Ricardo Arias
Ricardo Arias
Panama hlaut í dag sæti í öryggisráði Samneinuðu þjóðanna. Mikil barátta hefur staðið um sætið en Venesúela og Guatemala sóttust einnig eftir því. Bandaríkjamenn studdu Guatemala gegn Venesúela. Guatemala hafði betur í nær öllum atkvæðagreiðslunum í allsherjarþinginu en náði ekki því lágmarki sem þarf, sem eru tveir þriðju hlutar atkvæða. Fyrir nokkru náðist sátt um að bæði ríkin myndi bakka ef sátt næðist um annað ríki í Suður- og Mið-Ameríku.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×