Vilja hefja brottflutning hermanna innan hálfs árs 12. nóvember 2006 15:00 Bandarískir hermenn í Bagdad í dag. MYND/AP
Demókratar vonast til að geta þrýst á um að byrjað verði að kallað heim bandaríska hermenn frá í Írak eftir fjóra til sex mánuði og að herinn verði kallaður heim í áföngum. Þetta kom fram í máli demókratans Carls Levins, sem búist er við að verði nýr formaður hermálanefndar öldungadeildarinnar, í viðtali á sjónvarpsstöðinni ABC í dag. Eins og kunnugt er fóru demókratar með sigur af hólmi í kosningum til bæði fulltrúadeildar og öldungadeildar Bandaríkjaþings í síðustu viku sem þýðir að þeir geta haft meiri áhrif á stefnu stjórnvalda, t.d. í gegnum fjárveitingar. Levin sagði á ABC í dag að fyrsta verkefnið væri að snúa af þeirri braut sem Bandaríkjastjórn fetaði í Írak í dag og hann vonaði að menn úr röðum repúblikana myndu aðstoða demókrata við þrýsta á George Bush Bandaríkjaforseta að tilkynna írökskum stjórnvöldum að Bandaríkjamenn yrðu ekki í Írak um óákveðinn tíma. Bush hefur lýst því yfir að Bandaríkjaher hverfi ekki frá Írak fyrr en íröksk yfirvöld séu reiðubúin að taka við stjórn öryggismála í landinu. „Við þurfum að hefja brottflutning hermanna í áföngum eftir fjóra til sex mánuði," sagði Levin. Undir orð hans tók annar öldungadeildarþingmaður, Joseph Biden, en búist er við að hann verði formaður utanríkismálanefndar öldungadeildarinnar.
Erlent Fréttir Mest lesið Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ Sjá meira