Neyðarfundur hjá COBRA vegna njósnaramáls 27. nóvember 2006 11:55 MYND/AP
John Reid, innanríkisráðherra Bretlands, hefur boðað til neyðarfundar hjá svokallaðri COBRA-nefnd, sem fjallar um þjóðaröryggismál í í Bretlandi, vegna dauða Alexanders Litvinenkos, fyrrverandi njósnara hjá KGB og rússnesku öryggislögreglunni. Auk ráðherra eiga fulltrúar bresku leyniþjónustunnar og lögreglu sæti í COBRA og eftir því sem fram kemur á vef Sky-fréttastöðvarinnar ætlar hópurinn að meta hugsanlega hættu sem öðrum kunni að stafa af sams konar eitrun og dró Litvinenko til dauða. Litvinenko lést á sjúkrahúsi á fimmtudagskvöld eftir að hafa innbryrt stóran skammt af geislavirka efninu póloníum 210 og leikur grunur á að honum hafi verið byrlað efnið. Litvinenko snæddi á tveimur stöðum í Lundúnum daginn sem hann veiktist og hafa leifar af póloníumi fundist á öðrum þeirra. Hafa heilbrigðisyfirvöld því hvatt alla sem sóttu staðina til að gefa sig fram svo hægt sé að rannsaka hvort fleiri hafi orðið fyrir eitrun.
Erlent Fréttir Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Innlent Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Innlent Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Innlent Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Innlent Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Innlent Ók á ljósastaur við Grensásveg Innlent Tryggja þróunarríkjum 42 billjónir á ári með samkomulagi á COP29 Erlent Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Innlent Réttindalausir stútar á ferðinni Innlent Fleiri fréttir Vargöldin í Haítí versnar hratt Tryggja þróunarríkjum 42 billjónir á ári með samkomulagi á COP29 Uppnám á COP29 er fulltrúar þjóða strunsuðu út Vill einn af höfundum „Project 2025“ við stjórn fjárlagaskrifstofu Jöfnuðu fjölbýlishús við jörðu um miðja nótt Hakkarar komu sér fyrir í kerfum fjölda fjarskiptafyrirtækja Ákærður fyrir að nauðga og myrða þrettán ára stúlku Leita móður ungabarns sem fannst látið á víðavangi Styrkja loftvarnir Norður-Kóreu fyrir hermenn og vopn Bolsonaro og félagar kærðir fyrir valdaránstilraun Trump-liðar heita aðgerðum gegn sakamáladómstólnum Útlit fyrir að Scholz leiði flokk sinn til kosninga þrátt fyrir óvinsældir Eigandi gistiheimilis handtekinn í gengslum við metanóleitrun Kostnaðurinn við krýningu Karls konungs 13 milljarðar króna Pam Bondi kemur í stað Matt Gaetz Segir notkun eldflaugarinnar fela í sér stigmögnun átaka Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Gaetz ætlar sér ekki að verða dómsmálaráðherra Tóku tíu úkraínska fanga af lífi Meina fyrstu trans þingkonunni að fara á kvennaklósettið Fyrsta nærmyndin af stjörnu utan Vetrarbrautarinnar Gefa út handtökuskipun á hendur Netanjahú Fjögur ungmenni nú látin af völdum tréspírans Skutu fyrstu langdrægu skotflauginni að Úkraínu Hugmynd um banana á vegg seldist á 850 milljónir John Prescott fallinn frá Siðanefndin klofin í máli Gaetz en gögn farin að leka Høiby í vikulangt gæsluvarðhald Fara fram á tveggja vikna gæsluvarðhald yfir stjúpsyninum NATO tryggi lykilinnviði eftir ætluð spellvirki í Eystrasalti Sjá meira