Hátíðarhöld við Háskólann á Akureyri 28. nóvember 2006 11:04
Föstudaginn 1. desember kl. 17.00 verður Íslandsklukkunni, listaverki Kristins E. Hrafnssonar, við Háskólann á Akureyri hringt sex sinnum, einu sinni fyrir hvert ár umfram árið 2000. Baldvin Jóh. Bjarnason fyrrverandi kennari og skólastjóri hringir klukkunni með aðstoð Gunnars Aðalgeirs Arasonar 5 ára leikskólanema. Varaforseti háskólaráðs og formaður Félags stúdenta við HA munu flytja ávörp og eftir barnasöng verður boðið upp á kakó og smákökur í kaffiteríu skólans. Sú skemmtilega hefð hefur skapast við athöfnina að þar er samvinna skólastiga í forgrunni og setja leikskólanemendur sem eru að hefja sína skólagöngu skemmtilegan svip á hátíðlega athöfn. Klukkan 12.00 sama dag heldur Skúli Skúlason rektor Hólaskóla hátíðarfyrirlestur sem ber heitið Hlutverk okkar í mótun íslenskrar menningar. Fyrirlesturinn verður haldinn í stofu L201 að Sólborg v/Norðurslóð. Boðið verður upp á tónlistaratriði og léttar veitingar. Bæjarbúar og aðrir eru hjartanlega velkomnir í hátíðlega desemberstemningu við Háskólann á Akureyri
Lífið Mest lesið „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ Lífið Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Lífið „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Lífið Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“ Lífið Mikkel Hansen og Guðlaugur Victor í stuði hjá 66°Norður Lífið Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð Tónlist Kulnaður Köngulóarmaður skýtur klístruðum púðurskotum Gagnrýni Hvað veistu um… One Direction? Lífið „Hún er í hljóðverinu núna“ Lífið Inga Sæland orðin eldri borgari: „Mér finnst ég alltaf vera bara tvítug“ Lífið Fleiri fréttir Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira