Menning

Metsöluljóð! Ljóðabók Ingunnar Snædal uppseld

Ljóðabókin Guðlausir menn, hugleiðingar um jökulvatn og ást eftir Ingunni Snædal er uppseld hjá forlaginu. Ekki ein einasta bók á lager. Bókin er búin. Einhver eintök eru enn til í bókabúðum, en þau eru ekki mörg og fara líklega fljótt. Viðtökurnar við þessari ljóðabók hafa verið undursamlegar. Virðulegir ritdómarar hafa iðrast þess að hafa nokkurn tímann látið hvarfla að sér að ljóðið væri dautt og hugfangnir lesendur hafa sent forlaginu bréf og sagst hafa hlegið og grátið með Ingunni í strætó.

Ingunn Snædal er fædd á Egilsstöðum, uppalin á Jökuldal og hefur búið á Spáni, Írlandi, í Kostaríku, Danmörku, veturlangt á Aran-eyjum út af vesturströnd Írlands og til skamms tíma í Mexíkó. Hún er miðbarnið í fimm systkina hópi og hefur áður sent frá sér ljóðabókina Á heitu malbiki árið 1995. Ingunn hlaut bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrr í haust fyrir handritið að ljóðabókinni Guðlausir menn, hugleiðingar um jökulvatn og ást.

Önnur prentun er væntanleg innan skamms.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.