Innlent

Tíu Íslendingar afplána dóm í útlöndum

MYND/AFP

Tíu Íslendingar sitja í fangelsum í útlöndum eftir því sem utanríkisráðuneytinu er kunnugt um samkvæmt svari Valgerðar Sverrisdóttur utanríkisráðherra við fyrirspurn Guðjóns Ólafs Jónssonar, þingmanns Framsóknarflokksins.

Tveir þeirra afplána refsivist í Bandaríkjunum, annar vegna kynferðisafbrots en hinn fyrir rán og alvarlega líkamsárás, tveir sitja í fangelsi í Brasilíu fyrir fíkniefnabrot og sömuleiðist tvennt í Frakklandi vegna sömu saka. Þá situr einn inni í Þýskalandi og þrír í Danmörku en utanríkisráðuneytið hefur ekki upplýsingar um afbrot þeirra.

Íslenskum stjórnvöldum berst ekki formleg tilkynning um það þegar Íslendingar eru handteknir erlendis heldur koma slík mál til vitundar utanríkiþjónustunnar í gegnum þá einstaklinga sem í hlut eiga eða aðila sem tengjast þeim, eftir því sem segir í svari ráðherra.

Enn fremur kemur fram í svarinu að ráðuneytið hafi aðstoðað alla fangana á einhvern hátt, meðal annars með heimsóknum, viðtölum, samskiptum við fjölskyldur og aðstandendur, samskiptum við viðkomandi yfirvöld, túlkun í fangelsum, fundum með lögmönnum, haft milligöngu um að færa föngum bréfsefni, dagblöð, bækur og peningasendingar og unnið í því að finna lögmenn.

Guðjón Ólafur spurði einnig hvað utanríkisráðuneytið hefði haft milligöngu um lausn margra íslenskra ríkisborgara, sem setið hafa í fangelsum erlendis, eða flutning þeirra hingað til lands til afplánunar á árunum 2002-2006. Fram kom í svari utanríkisráðherra að almennt beiti íslensk stjórnvöld sér ekki fyrir lausn eða styttingu afplánunar íslenskra ríkisborgara erlendis. Helsta verkefni utanríkisþjónustunnar í málum sem þessum sé að hafa eftirlit með því að almennra mannréttinda sé gætt gagnvart íslenskum ríkiborgurum á meðan þeir eru í haldi erlendra ríkja.

Fangar geti farið fram á flutning til afplánunar á Íslandi og sé það í verkahring dóms- og kirkjumálaráðuneytisins að afgreiða slíkar beiðnir. Þó hafi utanríkisráðuneytið beitt sér í nokkrum málum á undanförnum árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×