Thierry Henry vill fá SWP til Arsenal 2. desember 2006 14:00 Shaun-Wright Phillips er eftirsóttur af mörgum liðum í ensku úrvalsdeildinni. MYND/Getty Images
Thierry Henry, fyrirliði Arsenal, hefur ráðlagt stjóra sínum Arsene Wenger að fá til sín enska vængmanninn Shaun-Wright Phillips frá Chelsea þegar opnað verður fyrir félagsskipti leikmanna að nýju í næsta mánuði. Henry lýsti því yfir í samtali við enska fjölmiðla að lítil breidd Arsenal væri mikið áhyggjuefni og kveðst fyrirliðinn búast fastlega við því að Wenger reyni að fá nokkra leikmenn til liðsins í næsta mánuði. "Það er hægt að gera mjög góða samninga með því að fá leikmenn lánaða. Eitt nafnið sem kemur strax upp í hugann er Shaun-Wright Phillips. Ef hann fengi tækifæri á láni hjá okkur er ég sannfærður um að hann myndi gera mjög góða hluti," sagði Henry, en þó er talið afar ólíklegt að Chelsea hafi áhuga á að lána Phillips, sérstaklega til erkifjanda á borð við Arsenal. Henry sagði jafnframt að Arsenal þyrfti á tvöföldu kraftaverki að halda ætli liðið sér að verða enskur meistari. "Það þurfa þá tvö lið að missa formið í langan tíma og við mættum að sama skapi ekki tapa mikið fleiri stigum á tímabilinu. Það er nánast vonlaust, en þó ekki útilokað," sagði Henry.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið Uppgjörið: Valur - Porrino 25-24 | Valskonur Evrópumeistarar fyrstar kvennaliða Handbolti Willum nýr forseti ÍSÍ með algjörum yfirburðum Sport Crystal Palace bikarmeistari í fyrsta sinn Enski boltinn Fulltrúar UEFA gengu út eftir að Infantino mætti seint Fótbolti Brjálaðist og gaf vellinum fokkmerki Golf „Orðið sem ég nota er forréttindapési“ Handbolti Gleymdu búningum svo bæði liðin eru merkt Stjörnunni Íslenski boltinn Real staðfestir kaupin á Huijsen fyrir 8,7 milljarða Fótbolti Erfitt að sofa eftir tvo sólarhringa á hlaupum Sport Uppgjörið: Þróttur - FH 4-1 | Sjóðheitir Þróttarar völtuðu yfir FH Íslenski boltinn Fleiri fréttir Crystal Palace bikarmeistari í fyrsta sinn „Talar ekki um eggið fyrr en hænan er búin að verpa“ Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool Eitt töfrabragð dugði gegn United í dýrmætum sigri Villa ekki í vandræðum með Spurs og stefnir aftur í Meistaradeildina Vonast til að Man United sé tilbúið að selja sig á tæplega sjö milljarða króna Dóttir Liams Gallagher á von á barni með guðsyni Guðna Bergs Þrír frá Liverpool og tveir frá Forest tilnefndir sem leikmaður ársins Maður Serenu kaupir hlut í Chelsea Awoniyi vaknaður eftir lífshættulegar en vel heppnaðar aðgerðir Segist ekki ætla að hætta en viðurkennir að hann gæti verið rekinn Kulusevski missir af úrslitaleiknum gegn Man United Sunderland sló áhorfendamet á leiðinni í úrslitaleikinn Awoniyi sofandi á gjörgæslu og gengst undir aðra aðgerð í dag Félagið neitar að borga svo Amorim opnar veskið Kvennalið Everton mun spila á Goodison sem verður ekki rifinn Man City sagt hafa lagt fram „mega“ tilboð í Wirtz Amorim gefur í skyn að hann fari frá Man Utd breytist kúltúrinn ekki Leiður að heyra púað á vin sinn: „Getur ekki sagt fólki hvernig því á að líða“ Eigandi Nott. Forest reifst við Nuno þjálfara inn á vellinum Pirruð Man City stjarna: „Þeir reyndu ekki einu sinni að vinna“ Arsenal kom til baka á móti meisturunum á Anfield Newcastle upp í þriðja sætið eftir sigur á Chelsea Enn eitt tapið á Old Trafford Palace fór létt með Tottenham sem hvíldi marga „Snýst um félagið, liðið og hvað við áorkum saman“ Hæstánægður með að Dýrlingarnir séu ekki lélegasta lið sögunnar Watkins hélt Meistaradeildardraum Villa á lífi „Vörðust og vörðust meira ásamt því að tefja tímann“ Man. City tapaði mjög óvænt stigum á móti botnliðinu Sjá meira