Fríverslunarviðræður eftir áramótin 4. desember 2006 19:15 MYND/Utanríkisráðuneytið
Viljayfirlýsing um upphaf fríverslunarviðræðna milli Íslands og Kína var undirrituð í Peking í dag. Í gær var fyrsti áfangi íslenskrar hitaveitu tekinn í notkun í Kína. Miklar vonir eru bundnar við hitaveituna og er stefnt að því að hún verði sú stærsta í heimi. Uppbygging hitaveitunnar er samstarfsverkefni kínversks orkufyrirtækis og ENEX Kína, sem er í eigu Orkuveitu Reykjavíkur, Glitnis og ENEX, útflutningsvettvangs íslenskra þekkingarfyrirtækja í orkuvinnslu. Hitaveitan, sem gangsett var í gærmorgun er fyrir þrjá háskóla og hitar upp um 170.000 fermetra. Það samsvarar um 2.500 manna bæjarfélagi á Íslandi. Þessi hluti kostaði rúmar 200 milljónir króna, en sá næsti sem ráðgert er að ráðast í á næsta ári er mun stærri og er metinn á um 4,2 milljarða króna. Fram til þessa hefur þetta húsnæði verið kynt með kolabruna. Jarðhiti og orka sprottin af honum er skilgreind sem „græn orka" í orkustefnu kínverska alþýðulýðveldisins og því talin hafa í för með sér stórkostlega möguleika til að sjá Kína og öðrum löndum fyrir hreinni orku til húshitunar. Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra gangsetti hitaveituna að viðstöddu fjölmenni. Hún segir það sitt mað að sala og útflutningur á þekkingu sé eitt það mikilvægasta fyrir Ísland. Á þessu sviði séu Íslendingar einfaldelga sérfræðingar og hún á von á að þessi nýja hitaveita geti orðið upphafið að einhverju mun stærra. Valgerður átti í morgun fund með ráðamönnum í Peking þar sem viljayfirlýsing um upphaf fríverslunarviðræðna milli ríkjanna var undirrituð. Þær viðræður hefjast þegar í upphafi árs 2007.
Erlent Fréttir Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ Sjá meira