Wenger stoltur af sínum mönnum 10. desember 2006 19:03 Arsene Wenger NordicPhotos/GettyImages
Arsene Wenger sagðist vera stoltur af sínum mönnum í dag eftir að Arsenal slapp með 1-1 jafntefli frá viðureign sinni við Chelsea á Stamford Bridge. Hann segir að mark Chelsea hefði aldrei átt að standa vegna þess að Ashley Cole hafi brotið af sér skömmu áður en Michael Essien jafnaði leikinn með frábæru skoti. "Ég er mjög stoltur af strákunum í dag," sagði Wenger, en meðalaldurinn í varnarlínu Arsenal var rétt rúm 20 ár. "Við höfum spilað nokkra mjög erfiða leiki undanfarið og strákarnir stóðu sig með prýði. Við hefðum líka geta stolið sigrinum í leiknum og ég er dálítið svekktur með aðdraganda marks þeirra því Ashley Cole braut greinilega á Hleb. Jafntefli er líklega ágæt niðurstaða en strákarnir voru greinilega mjög þreyttir síðustu tuttugu mínúturnar. Ég kaus að stilla upp fimm manna miðju til að veita ungu strákunum í vörninni stuðning gegn sterku liði og þeir gerðu það vel. Það er líklega of stórt sagt að halda því fram að við verðum í baráttunni um titilinn, en við erum sannarlega ekki sáttir við að vera þar sem við erum í töflunni í dag," sagði Wenger.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti HM-dómara neitað um inngöngu í Bandaríkin Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Sjá meira