Sonko áhyggjufullur vegna morðhótana 22. desember 2006 20:00 Imrahima Sonko og Ívar Ingimarsson hafa náð einstaklega vel saman í vörn Reading það sem af er leiktíð. Hér sést Sonko í baráttu við Carlos Tevez hjá West Ham. MYND/Getty
Ibrahima Sonko, félagi Ívars Ingimarssonar í vörn Reading í ensku úrvalsdeildinni, hefur fengið morðhótanir frá stuðningsmönnum Chelsea allt frá því að hann lenti í samstuði við markvörðinn Carlo Cudicini í leik liðanna í október sl. Sonko kveðst ekki standa á sama um hótanirnar, en liðin eigast við að nýju annan í jólum. Margir muna líklega eftir leiknum í Reading í október því þá varð aðalmarkvörður Chelsea, Peter Cech, fyrir því að höfuðkúpubrotna eftir samstuð við Stephen Hunt, sem áður hefur greint frá því að hafa fengið morðhótanir frá stuðningsmönnum Chelsea. Cudicini leysti hann af en þurfti einnig að fara af velli í síðari hálfleik eftir að hafa lent í samstuði við Sonko. Og nú hefur varnarmaðurinn frá Fílabeinsströndinni greint frá því að hann ekki sloppið neitt betur en Hunt. “Að sjálfsögðu stendur mér ekki á sama um svona bréf. Ég hef verið hræddur og tek þessu mjög alvarlega. Það er fullt af fólki sem getur misst stjórn á skapi sínu þegar kemur að því að hefna fyrir aðra,” segir Sonko. “Í fyrstu leiddi ég þetta hjá mér en eftir því sem bréfin urðu fleiri þá varð þetta alvarlegra. Maður veit ekki frá hverjum þetta er og þess vegna er maður meira var um sig á meðal ókunnugra. En ég skil ekki hvernig það er hægt að gera svona lagað. Svona fólk er ekki með fullu viti og hafa greinilega ekkert betra að gera en að senda ógeðsleg bréf til ókunnugs fólks,” sagði Sonko jafnframt.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið Brjálaðist og gaf vellinum fokkmerki Golf Fulltrúar UEFA gengu út eftir að Infantino mætti seint Fótbolti Erfitt að sofa eftir tvo sólarhringa á hlaupum Sport Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool Enski boltinn Óðs manns æði Arnars: „Ég ætla samt að gera þetta“ Fótbolti Real staðfestir kaupin á Huijsen fyrir 8,7 milljarða Fótbolti Dagskráin í dag: Úrslitaleikur FA Cup, risamót í golfi og sjóðheit lið í Bestu Sport Sjáðu mörkin: Berglind í hefndarhug með fleiri en allt Valsliðið í sumar Íslenski boltinn Stjörnurnar fögnuðu og hátíð á götum New York eftir sigur á meisturunum Körfubolti Stálheppinn þegar hann sló í hrífu og hélt toppsætinu Golf Fleiri fréttir „Talar ekki um eggið fyrr en hænan er búin að verpa“ Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool Eitt töfrabragð dugði gegn United í dýrmætum sigri Villa ekki í vandræðum með Spurs og stefnir aftur í Meistaradeildina Vonast til að Man United sé tilbúið að selja sig á tæplega sjö milljarða króna Dóttir Liams Gallagher á von á barni með guðsyni Guðna Bergs Þrír frá Liverpool og tveir frá Forest tilnefndir sem leikmaður ársins Maður Serenu kaupir hlut í Chelsea Awoniyi vaknaður eftir lífshættulegar en vel heppnaðar aðgerðir Segist ekki ætla að hætta en viðurkennir að hann gæti verið rekinn Kulusevski missir af úrslitaleiknum gegn Man United Sunderland sló áhorfendamet á leiðinni í úrslitaleikinn Awoniyi sofandi á gjörgæslu og gengst undir aðra aðgerð í dag Félagið neitar að borga svo Amorim opnar veskið Kvennalið Everton mun spila á Goodison sem verður ekki rifinn Man City sagt hafa lagt fram „mega“ tilboð í Wirtz Amorim gefur í skyn að hann fari frá Man Utd breytist kúltúrinn ekki Leiður að heyra púað á vin sinn: „Getur ekki sagt fólki hvernig því á að líða“ Eigandi Nott. Forest reifst við Nuno þjálfara inn á vellinum Pirruð Man City stjarna: „Þeir reyndu ekki einu sinni að vinna“ Arsenal kom til baka á móti meisturunum á Anfield Newcastle upp í þriðja sætið eftir sigur á Chelsea Enn eitt tapið á Old Trafford Palace fór létt með Tottenham sem hvíldi marga „Snýst um félagið, liðið og hvað við áorkum saman“ Hæstánægður með að Dýrlingarnir séu ekki lélegasta lið sögunnar Watkins hélt Meistaradeildardraum Villa á lífi „Vörðust og vörðust meira ásamt því að tefja tímann“ Man. City tapaði mjög óvænt stigum á móti botnliðinu Haaland hreinskilinn: Ég hef ekki verið nægilega góður Sjá meira