Bíó og sjónvarp

Stórskotalið leikara í Legi

Hugleikur Dagsson, Stefán Jónsson og Davíð Þór Jónsson sameina krafta sína á ný í Legi, en þeir unnu líka saman að sýningunni Forðist okkur.
Hugleikur Dagsson, Stefán Jónsson og Davíð Þór Jónsson sameina krafta sína á ný í Legi, en þeir unnu líka saman að sýningunni Forðist okkur. MYND/Valli

Stórskotalið yngri kynslóðar leikara kom saman í Þjóðleikhúsinu í gær þar sem fyrsti samlestur á söngleiknum Leg eftir Hugleik Dagsson fór fram. Verkið fjallar um örlög óléttu unglingsstúlkunnar Kötu í Garðabæ framtíðarinnar, en hlutverk hennar er í höndum Dóru Jóhannsdóttur.

Hugleikur var hæstánægður með útkomuna.

„Þetta leggst alveg svakalega vel í mig, enda er þetta besta lið sem höfundur getur vonast eftir. Leikmyndin er bara tímamótaverk. Hún er listaverk út af fyrir sig og búningarnir ættu að fara á eitthvert catwalk í París,“ sagði Hugleikur, sem vildi þó lítið tjá sig og hefur sett sjálfan sig í fjölmiðlabann eftir að hafa verið nokkuð áberandi á síðum blaðanna fyrir jól.

Margt samstarfsfólk Hugleiks úr Forðist okkur, sem Nemendaleikhúsið setti upp í samvinnu við Common Nonsense árið 2005, snýr aftur til verka í Legi. Stefán Jónsson leikstýrir að nýju, Davíð Þór Jónsson sér um tónlistina ásamt hljómsveitinni Flís, og Ilmur Stefánsdóttir gerir leikmynd. „Hann Stefán skilur mig alveg rosalega vel,“ sagði Hugleikur um samstarfið.

„Ég lít á hann sem svona síamstvíburabróður.“ Meðal annarra leikara í sýningunni eru þau Atli Rafn Sigurðarson, Halldóra Geirharðsdóttir, Elma Lísa Gunnarsdóttir og Kjartan Guðjónsson, en Leg mun koma fyrir augu landsmanna í febrúar. - sun






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.