Menning

Skáldið Jón Laxdal

Hinn fjölhæfi Jón Laxdal les úr verkum sínum á bókmenntakvöldi Populus Tremula.
Hinn fjölhæfi Jón Laxdal les úr verkum sínum á bókmenntakvöldi Populus Tremula. Mynd/spessi

Ljóðskáldið Jón Laxdal Halldórsson er ef til vill betur þekkt fyrir myndlist sína en skáldskap en á því verður gerð bragarbót í kvöld. Norður á Akureyri eru haldin bókmenntakvöld á vegum menningarsmiðjunnar Populus Tremula en smiðja sú starfar í Listagilinu þar í bæ.

Sigurður Ólafsson heimspekingur mun í kvöld fjalla um skáldið Jón Laxdal sem sjálft mun lesa upp úr verkum sínum. Af sama tilefni kemur út á vegum Populus Tremula ljóðakver með úrvali kvæða eftir höfundinn. Bókin er gefin út í hundrað tölusettum og árituðum eintökum og verður til sölu á staðnum fyrir litlar þúsund krónur. Er þetta í fyrsta sinn sem Populus tremula gefur út slíkt rit en stefnt er að því að gefa út þrjú önnur rit til vors.

Dagskráin í kvöld hefst kl. 21, aðgangur er ókeypis og eru malpokar leyfðir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.