Menning

Baudrillard látinn

Jean Baudrillard. Hugmyndir hans hafa haft gríðarleg áhrif á nútímahugvísindi.
Jean Baudrillard. Hugmyndir hans hafa haft gríðarleg áhrif á nútímahugvísindi. MYND/AFP

Franski heimspekingurinn og menningarfræðingurinn Jean Baudrillard lést í París síðastliðinn þriðjudag. Hann var 77 ára að aldri og hafði glímt við langvarandi veikindi.

Með skrifum sínum hafði Baudrillard mikil áhrif á hugvísindi nútímans. Samkvæmt kenningum Baudrillard einkennist líf nútímamannsins af ógreinilegum mörkum milli raunveruleika og blekkingar.

Meðal frægustu hugmynda hans eru kenningar um samfélag „ofurveruleikans" þar sem eftirmyndir raunveruleikans, til að mynda símiðlaðar afurðir fjölmiðlanna, eru raunverulegri en veruleikinn sjálfur. Verk hans eru jafnan splæst saman við kenningar um póstmódernisma og póst-strúktúralisma.

Baudrillard er ekki síður minnst fyrir beitta samfélagsgagnrýni og skrif um stjórnmál og alþjóðavæðingu. Hann var umdeildur kennismiður og sumir kölluðu hann heimspekitrúð. Greinarflokkur sem hann skrifaði um Persaflóastríðið og birtist í dagblaðinu Libération árið 1991 vakti til að mynda mikla athygli og deilur. Greinarnar voru síðar gefnar út á bók og báru þá umdeildan titil þess efnis að stríðið hefði ekki átt sér stað. Höfundurinn afneitaði þó ekki átökunum við Persaflóa heldur nýtti hann hugmyndina um framkvæmd og miðlun Persaflóastríðsins, sem var fyrsta „stríðið" sem sjónvarpað var á rauntíma, sem dæmi um ástand nútímans og eftirlíkingaráráttu ofurveruleikans.

Baudrillard gaf út rúmlega fimmtíu bækur á ferli sínum, auk ritgerða og greina. Þeirra þekktastar eru Simulacres et simulation (1981) og Power Inferno, Requiem pour les Twins Towers og Hypothèse sur le terrorisme (2002).






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.