Öðruvísi bækur fyrir fermingarbörnin 22. mars 2007 04:15 Sumum þykir nú nóg um þá efnishyggju sem fylgir fermingunni. Þessi bók hentar mjög vel til að fullkomna þá ímynd eða kannski hæðast að henni. 101 Things To Buy Before You Die er full af freistandi vörum sem margar eiga sameiginlegt að vera klassísk hönnun og draumur fagurkerans (eða aurapúkans).
Bækur sem vekja áhuga og kitla hláturtaugarnar. Bókagjöf er ávallt góð gjöf og hafa bækur lengi verið vinsælar fermingargjafir. Ef fermingarbarnið hefur gaman af handavinnu þá er þessi bók málið! Í henni eru dýrðlegar prjónahugmyndir sem eiga það allar sameiginlegt að vera svo hallærislegar að þær verða eiginlega flottar. Þarna má finna prjónuð leikföng, pils, geimfarahettu og kjól með prjónuðum útlínum og saumum. Sjón er sögu ríkari! Oftar en ekki fá fermingarbörnin fjársjóði á borð við bækur nóbelsskáldsins, ljóðasafn Tómasar Guðmundssonar eða Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi, Atlas eða aðrar veglegar bækur. Hér er leið til að kynnast mannkynssögunni á skemmtilegan og kaldhæðinn hátt. Í bókinni er farið í helstu hörmungar og skelfingaratburði heimssögunnar og bent á leiðir til að forðast að endurtaka sömu mistökin. Þetta er sem fyrr segir gert á kaldhæðinn hátt og með húmor. Fín bók til að kitla hláturtaugarnar og læra eitthvað í leiðinni. Ósjaldan liggja bækurnar óhreyfðar næstu árin þar til einn daginn að fermingarbarnið er ekki barn lengur og uppgötvar hve mikil verðmæti það hefur í höndunum – eða að minnsta kosti vona þeir sem gefa að sú verði þróunin ef bókin hefur ekki slegið í gegn í upphafi. Er „goth-ari“ í fjölskyldunni? Þá ætti þessi bók hér að falla vel í kramið. Hér er fagurlega myndskreytt bók í anda japanskra teiknimynda þar sem farið er í saumana á því hvernig beri að haga sér sem goth-ari. Þrátt fyrir drungalegt viðfangsefni er bókin þó fremur dúlluleg og mjög fyndin á köflum. Hún gæti einnig höfðað til myndasöguaðdáenda. Hins vegar er til heill hafsjór af skemmtilegum bókum sem henta mismunandi áhugasviðum og er verðlagið líka fjölbreytt. Hægt er að fá ýmsar sniðugar bækur á góðu verði og getur þetta verið ágætis hugmynd að gjöf frá vinum eða öðrum þeim sem hyggja ekki á meiri háttar fjárútlát. Hér er á ferðinni alfræðibók um dýrlinga. Þessi bók gerir manni kleift að hafa dýrlingana á hreinu og ef fermingarbarnið vill finna einhvern úr sögu kristninnar sem höfðar hvað best til þess þá er ekki úr vegi að fletta upp einum vel völdum dýrlingi. Kannski þessi bók höfði meira til kaþólskra en hver þarf ekki á góðum dýrlingi að halda? Auk þess hafa margar þessara bóka mikið skemmtanagildi og eins og við öll vitum þá lengir hláturinn lífið. Bækurnar fást allar í bókabúðinni Iðu. Ef fermingarbarnið hefur áhuga á hönnun þá er þessi bók kjörin. Hún er litrík og fjörug og í henni má sjá ýmiss konar vörumerkjahönnun sem og hönnun á skemmtilegum karakterum eins og teiknimyndapersónum. Þessari bók er hægt að fletta aftur og aftur og rekast samt á eitthvað nýtt í hvert skipti. .
Fermingar Mest lesið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tímamót hjá Árna Má Menning Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Lífið Fleiri fréttir Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster Sjá meira