Menning

David Bowie stjórnar listahátíð

Breski tónlistarmaðurinn stendur á bak við hátíðina High Line Festival.
Breski tónlistarmaðurinn stendur á bak við hátíðina High Line Festival.

Grínistinn Ricky Gervais og kanadíska hljómsveitin The Arcade Fire eru á meðal þeirra sem munu koma fram á listahátíðinni High Line Festival sem verður haldin á Manhattan í New York dagana 9. til 19. maí.

Tónlistarmaðurinn David Bowie er einn af þeim sem standa að hátíðinni og sá um að velja réttu listamennina til að taka þátt. „Ég vildi velja listamenn sem ég myndi virkilega vilja sjá sjálfur,“ sagði hinn sextugi Bowie. „Þrátt fyrir að þessi hátíð verði lítil í sniðum til að byrja með hafa þeir sem við höfum haft samband við, allir viljað taka þátt.“ Margir muna eftir gestahlutverki Bowie í þætti Gervais, Extras, og því hefur Bowie ákveðið að launa honum greiðann.

Á meðal fleiri þekktra hljómsveita á hátíðinni verða Air, Deerhof, The Polyphonic Spree og The Secret Machines. Einnig kemur þar fram ljóðskáldið Ken Nordine sem er 87 ára.

Bowie hefur einnig valið tíu af uppáhalds kvikmyndum sínum frá Spáni til að taka þátt í hátíðinni. Hluti af aðganseyri hátíðarinnar mun renna til góðgerðarmála.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.