Menning

Vandinn við Kafka

Ástráður Eysteinsson fjallar um Kafka og vandann við að skilja verk hans.
Ástráður Eysteinsson fjallar um Kafka og vandann við að skilja verk hans. MYND/Hari

Ástráður Eysteinsson, prófessor í almennri bókmenntafræði og þýðandi, heldur erindi um nóvelluna Umskiptin eftir Franz Kafka í dag.

Erindi sitt kallar Ástráður „„Þetta var ekki draumur“: Vandinn að skilja og þýða Umskiptin“ en verk það, ásamt skáldsögunni Réttarhöldunum, er með þekktustu verkum Kafka og jafnframt eitt frægasta sagnaverk evrópskra bókmennta á 20. öld.

Þetta er saga sem margir þekkja og hafa lesið en jafnframt verk sem enn vefst mjög fyrir þeim sem leitast við að túlka eða „skýra“ hana – svo mjög raunar, að rætt hefur verið um „örvæntingu túlkandans“. Í erindinu verður spurt hvaða þröskuldar mæti skilningi lesenda í sögunni. Í því samhengi verður einnig velt vöngum yfir reynslunni af því að þýða slíkt verk yfir á íslensku.

Erindið flytur Ástráður á vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur sem skipuleggur fyrirlestraröðina „Þýðing öndvegisverka“. Fyrirlesturinn fer fram í stofu 111 í Aðalbyggingu Háskóla Íslands og hefst kl. 16.30 í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.