Menning

Framlag verðlaunað

Salmans Rushdie
Salmans Rushdie

Rithöfundarnir Margaret Atwood, Ian McEwan og Philip Roth eru meðal þeirra sem hlutu náð fyrir valnefnd Alþjóðlegu Booker bókmenntaverðlaunanna og komust á lista yfir þá fimmtán höfunda sem tilnefndir eru í ár.

Verðlaunum þessum var komið á fót árið 2005 en ólíkt hinum eiginlegu Booker-verðlaunum, sem ætluð eru breskum skáldsagnahöfundum og kollegum þeirra á Írlandi, Suður-Afríku eða í ríkjum sem tilheyrðu breska heimsveldinu, eru alþjóðlegu verðlaunin ekki veitt fyrir stök höfundarverk heldur fyrir feril og framlag höfunda til bókmenntanna í heild.

Man Booker verðlaunin voru fyrst afhent árið 1969 og teljast með virtari bókmenntaverðlaunum og nú er til að mynda einnig farið að veita rússnesku Booker verðlaun. Þessi alþjóðlegu verðlaun voru fyrst afhent árið 2005 en þau hlaut þá albanski rithöfundurinn Ismail Kadaré.

Verðlaunaféð er nemur um 7,8 milljónum króna en verðlaunin eru afhent annað hvert ár.

 

Salman Rushdie

Dómnefnd verðlaunanna er einráð og tekur því ekki við ábendingum frá bókaútgefendum. Dómnefndina skipa fræðikonan Elaine Showalter og rithöfundarnir Nadine Gordimer og Colm Tóbín en þátttökurétt eiga höfundar sem skrifa á ensku eða hvers verk eru aðgengileg í enskum þýðingum. Fleiri kunnugleg nöfn má finna á listanum, þar á meðal nöfn Alice Munro, Salmans Rushdie, Doris Lessing, Carlos Fuentes og Amos Oz en tilkynnt verður um verðlaunahafann í júníbyrjun.

Aukinheldur eru veitt verðlaun fyrir þýðingar og ef svo á við getur verðlaunahafinn valið þýðanda að verkum sínum sem þá hlýtur einnig dágóða summu fyrir sitt starf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.