Brynhildi skipt út fyrir breska leikkonu 9. maí 2007 10:00 Theodór Júlíusson kemur sterklega til greina fyrir hlutverk heimilisleysingja í hryllingsmyndinni Lordi. „
Skjótt skipast veður í þessum bransa. Þetta er vissulega súrt í broti en svona getur þetta verið," segir Ingvar Þórðarson, framleiðandi hjá Kvikmyndafélagi Íslands. Þau leiðinlegu tíðindi hafa nú borist að Brynhildur Guðjónsdóttir rétt missti af aðalhlutverkinu í hryllingsmyndinni Lordi: Dark Floors með finnsku skrýmslahljómsveitinni Lordi. Kvikmyndafélag Íslands er meðframleiðandi myndarinnar og þegar tilkynnt var um samstarfið var talið nánast öruggt að eitt af aðalhlutverkunum væri eyrnamerkt íslenskri leikkonu. Bresk leikkona hefur hins vegar verið ráðin í hlutverkið. Hins vegar gætu tveir íslenskir karlleikarar af eldri kynslóðinni fengið stór hlutverk í kvikmyndinni. Þeir Pétur Einarsson og Theódór Júlíusson hafa að undanförnu mætt í prufur hjá Reykjavík Casting og var talið líklegt að þau mál myndu skýrast seint í gær eða í dag. Brynhildur var komin nálægt því að vera ráðin í aðalhlutverk myndarinnar. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins þykir Theódór þó líklegri og var Mýrin meðal annars send út til leikstjórans en þar fór leikarinn á kostum sem smáglæpamaðurinn Elliði. Um er að ræða hlutverk drykkfellds heimilislauss manns og er áætlað að tökudagarnir verði hátt í tuttugu hjá Theódóri ef af verður.
Mest lesið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Lífið Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Lífið Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Lífið Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Lífið Ný hugsun í heimi brúnkuvara Lífið samstarf Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Lífið Fleiri fréttir Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Fyrsta íslenska myndin í Cannes Premiere-flokki Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Viðræður hafnar um framhald á Adolescence Rísandi stórstjarna og alvöru hjartaknúsari Bestu myndir Vals Kilmer og verstu floppin Þeir munu túlka Bítlana í myndum Sam Mendes Sjá meira