Höfðuðu mál vegna Brokeback 18. maí 2007 07:30 Kvikmyndin segir frá tveimur kúrekum sem eiga í ástarsambandi.
Tólf ára bandarísk stúlka hefur ásamt afa sínum og ömmu höfðað mál gegn menntamálaráði Chicago eftir að aðstoðarkennari sýndi myndina Brokeback Mountain í skólastund. Í málshöfðuninni kemur fram að stúlkan, Jessica Turner, hafi borið sálfræðilegan skaða eftir að hafa horft á myndina er hún var í áttunda bekk Ashburn-skólans í fyrra. Farið er fram á rúmlega þrjátíu milljónir króna í skaðabætur. Brokeback Mountain, sem vann þrenn Óskarsverðlaun, fjallar um tvo kúreka sem eiga í ástarsambandi. „Mér finnst mjög mikilvægt að börnin mín sjái ekki svona hluti,“ sagði afi stúlkunnar. „Kennarinn vissi að hann mátti ekki sýna myndina.“ Fyrir tveimur árum kvartaði afinn við skólayfirvöld yfir því að of mörg blótsyrði væru í námsbókunum. „Þetta var kornið sem fyllti mælinn. Ég varð að höfða mál eftir að hafa varað þau við vegna bókanna sem börnin voru látin lesa. Ég sagði þeim að þær væru ekki réttar fyrir okkar trúarbrögð.“
Mest lesið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Lífið Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Lífið Sögulegt parhús í Hlíðunum Lífið Ný hugsun í heimi brúnkuvara Lífið samstarf Fleiri fréttir Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Fyrsta íslenska myndin í Cannes Premiere-flokki Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Viðræður hafnar um framhald á Adolescence Rísandi stórstjarna og alvöru hjartaknúsari Bestu myndir Vals Kilmer og verstu floppin Þeir munu túlka Bítlana í myndum Sam Mendes Sjá meira