Menning

Á stefnumót

Ámundi Sigurðsson hönnuður
leiðir gesti um Kjarvalsstaði í hádeginu.
Mynd/Erik jan Vens
Ámundi Sigurðsson hönnuður leiðir gesti um Kjarvalsstaði í hádeginu. Mynd/Erik jan Vens

Einn af þeim rúmlega áttatíu hönnuðum sem eiga verk á sýningunni Magma/Kvika á Kjarvalsstöðum er grafíski hönnuðurinn Ámundi Sigurðsson en hann verður með hádegisleiðsögn um sýninguna kl. 12 í dag.

Ámundi hefur starfað sem grafískur hönnuður frá 1985. Hann hannaði m.a. útlit nýlegrar auglýsingaherferðar í formi veggspjalda og blaðaauglýsinga fyrir Landsbankann, þar sem landsmönnum var óskað til hamingju með hina ýmsu tyllidaga, og hlaut fyrir hana viðurkenningar og verðlaun.

Skjaldarmerki hljómsveitarinnar Ghostigital er eitt af verkum Ámunda en hann á einnig heiðurinn af hönnun bókarinnar Magma/Kvika sem gefin var út í tilefni sýningarinnar.

Hádegisstefnumótið hefst kl. 12 og stendur í 20 mínútur. Frítt er í öll hús Listasafns Reykjavíkur á fimmtudögum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.