Menning

Ljósmyndarar á ferð

Páll Stefánsson ljósmyndari
Páll Stefánsson ljósmyndari

Í kvöld fer Guðmundur Ingólfsson ljósmyndari í göngutúr á vegum Ljósmyndasafns Reykjavíkur og hyggst hann leiða menn á vit myndefna í Kvosinni.

Guðmundur er borinn og barnfæddur Reykvíkingur og hafði lengi aðsetur með stofu sína milli Hverfisgötu og Laugavegar en er nú kominn út á Granda. Hann var einn af forvígismönnum Torfusamtakanna á sinni tíð og hefur um langt árabil tekið myndir í Reykjavík miðri og víðar. Lagt verður af stað frá Grófarhúsinu og stendur gangan frá 20 til 21.

Annar yngri ljósmyndari og víðförull, Páll Stefánsson opnar á laugardag í nýja ljósmyndagalleríinu hans Ara Sigvaldasonar, Fótógrafí, sýningu á myndum sínum frá Afríku. Hann kallar hana Heitt.

Páll er að vinna bók um Afríku, bók sem gefur jákvæða mynd af þessari heimsálfu þar sem knattspyrnan er í fókus. Sýningin er afrakstur ferðar Páls og Halldórs Lárussonar um Kamerún í maí 2007. Bókin kemur út haustið 2009.

Sýningin stendur til 4. ágúst. Opið er alla daga í Fótógrafí neðst á Skólavörðustíg frá 12 til 18.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.