Trúarfíkn 22. júlí 2007 07:00 Í einni af skáldsögum Terrys Pratchetts kemst Dauðinn að þeirri niðurstöðu að lífið sé vanabindandi. Enginn getur hætt eftir fyrsta andardráttinn, sá fyrsti kallar á þann næsta og þannig koll af kolli uns fólk leggur sig í kjánalega framkróka og veður eld og brennistein til þess eins að halda lífi. Dauðinn á reyndar afskaplega erfitt með að átta sig á lífinu og rökleysunni sem oft einkennir það, til dæmis eðli fíknar. Því notar hann hugtakið af algerri vanþekkingu. Það gerir engan að súrefnisfíkli að geta ekki án súrefnis verið. Fíkn er alltaf skemmandi afl. Henni fylgir leynd, skömm og kvíði. Hún lýsir sér í stjórnleysi á flestum sviðum, oft stjórnlausri stjórnsemi. Hún miðar að því að tortíma fíklinum andlega, tilfinningalega, fjárhagslega og félagslega og sviptir hann mannlegri reisn. Hún skilur fjölskyldur eftir í sárum, því fíkillinn tekur flóttann fram yfir velferð maka og barna. Hún einkennist af andfélagslegri hegðun, víðtæku ábyrgðarleysi og stanslausri sjálfshátíð; sjálfsréttlætingu og sjálfsvorkunn. Fíknin er berserksgangur sjálfshyggjunnar. Flest sem lætur fólki líða vel getur valdið fíkn. Þannig þekkist meðal annars áfengis- og lyfjafíkn, átfíkn, spilafíkn, netfíkn, ástar- og kynlífsfíkn og jafnvel trúarfíkn. Lýsingin hér að ofan á við um þetta allt, ekki síst trúarfíknina. Trúariðkun sem lýsir sér á þennan hátt er sjúkleg. Annað einkennir alla fíkn: Það er til lausn. Um allan heim hefur fjöldi fólks sigrast á öllum tegundum fíknar - líka trúarfíkn - eftir andlegum leiðum sem meðal annars fela í sér æðri mátt og handleiðslu hans. Þetta gerir það að verkum að margir líta svo á að fíkill í bata hafi einfaldlega skipt einni fíkn út fyrir aðra. Slíkt þekkist auðvitað, en þá láta raunveruleg batamerki eðlilega ekki á sér kræla. Yfirleitt er þetta þó sami misskilningur og ruglar saman áfengi og alkóhólisma. Trú sem byggir á náungakærleik, auðmýkt og umburðarlyndi er ekki fíkn heldur einmitt fullkomin andstæða hennar á allan hátt. Trú sem sættir í stað þess að sundra er ekki sjúkdómur heldur einmitt lausn undan einhverju skelfilegasta meini sem herjað hefur á mannkynið. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Davíð Þór Jónsson Mest lesið Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson Skoðun Það sem voru „bjartari tímar“ í fyrra eru nú bölvaðar skattahækkanir Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hvað hafa sjómenn gert Samfylkingunni? Sigfús Karlsson Skoðun Framtíð Suðurlandsbrautar Birkir Ingibjartsson Skoðun Ólaunuð vinna kvenna Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir Skoðun Gagnrýni á umfjöllun um loftslagsmál og landnotkun í bókinni Hitamál Eyþór Eðvarðsson Skoðun Íslenska er leiðinleg Nói Pétur Á Guðnason Skoðun Réttlæti án sannleika er ekki réttlæti Hilmar Kristinsson Skoðun Hverjum voru ráðherrann og RÚV að refsa? Júlíus Valsson Skoðun Ólögmæt mismunun eftir búsetu öryrkja fest í lög á Íslandi Jón Frímann Jónsson Skoðun
Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson Skoðun
Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson Skoðun