PISA: Eru forsendurnar þær sömu í öllum löndum? Björn Þórisson skrifar 3. júní 2026 07:47 Mikið hefur verið rætt um slakan árangur íslenskra barna í PISA-könnunum. Það er eðlilegt. Ef lesskilningur, stærðfræði og grunnfærni veikist, þá er það auðvitað áhyggjuefni. En áður en við drögum stórar ályktanir af samanburði Íslands við önnur lönd þurfum við að spyrja einfaldrar en mikilvægrar spurningar: Voru forsendurnar þær sömu? Með öðrum orðum: Hverjir voru í raun prófaðir? Í PISA 2022 var heildarútilokunarhlutfall Íslands 4,82%. Finnland var 3,28%. En Danmörk var 11,6%, Noregur 7,3% og Svíþjóð 7,4%. Fleiri lönd voru einnig yfir 5% viðmiði OECD, meðal annars Holland, Lettland, Ástralía, Skotland, Litháen, Bandaríkin, Eistland, Kanada, Sviss, Nýja-Sjáland, Tyrkland og Króatía. Þetta er ekki smáatriði. Þetta er grundvallaratriði. PISA er alþjóðlegt próf, en það þýðir ekki að bókstaflega allir 15 ára nemendur í hverju landi séu alltaf teknir með. OECD heimilar ákveðnar útilokanir, til dæmis vegna fötlunar, alvarlegra námsörðugleika, takmarkaðrar kunnáttu í próftungumálinu eða annarra aðstæðna sem gera þátttöku í prófinu óraunhæfa. Það getur verið skiljanlegt. En það skiptir miklu máli fyrir samanburðinn. OECD miðar almennt við að útilokanir fari ekki yfir 5% af markhópnum. Með öðrum orðum á PISA að ná til að minnsta kosti 95% þeirra 15 ára nemenda sem eiga að vera hluti af mælingunni. En jafnvel þetta 5% viðmið er nokkuð rúmt. Fimm prósent af heilum árgangi eru ekki fá börn. Og ef börnin sem eru undanskilin eru að stórum hluta börn sem líklegra er að eigi erfitt með prófið, getur það haft áhrif á meðaltalið. Það segir sig eiginlega sjálft. OECD bendir líka á þetta og segir að útilokanir geti hækkað landsmeðaltal, sérstaklega ef útilokuðu nemendurnir hefðu að jafnaði staðið verr að vígi en þeir sem tóku prófið. PISA er ekki árleg mæling. Þess vegna eru 2022 tölurnar síðustu birtu heildarniðurstöðurnar sem hægt er að nota í svona samanburði. Mér finnst merkilegt að ég minnist þess ekki að hafa séð þetta atriði fá mikið -ef nokkurt- vægi í íslensku PISA-umræðunni. Kannski hefur það farið fram hjá mér. En ef við ætlum að nota PISA sem stóran mælikvarða á stöðu íslenskra barna, hlýtur að skipta máli að ræða líka hverjir voru í raun með í mælingunni. T.d. hefur Danmörk nýlega verið notað hér á landi sem sláandi samanburðardæmi við Ísland. Talað hefur verið um að dönsk börn fái mun fleiri kennsludaga og jafnvel sem nemur nokkrum auka skólaárum miðað við íslensk börn. Slíkur samanburður getur verið gagnlegur. En hann verður þá að vera heill. Ef Danmörk er notuð sem fyrirmynd í umræðu um námsárangur, kennslutíma og PISA, þá hlýtur líka að skipta máli að Danmörk var með 11,6% útilokunarhlutfall í PISA 2022. Það er meira en tvöfalt hærra en á Íslandi og langt yfir 5% viðmiði OECD. Í Danmörku tengdist þetta meðal annars því að margir nemendur með greinda lesblindu nota rafræn leshjálpartæki í prófum. Slík aðlögun var ekki í boði með sama hætti í PISA-prófinu. Því voru fleiri nemendur útilokaðir. Það þýðir ekki að Danir séu að gera eitthvað óheiðarlegt. Það þýðir ekki heldur að að við eigum að yppta öxlum yfir íslensku niðurstöðunum. Þvert á móti. Við eigum að taka þær alvarlega. En við eigum líka að vera nákvæm. Það er mikill munur á því að segja: „Íslensk börn komu illa út í PISA og við þurfum að bregðast við,“ og að segja: „Íslensk börn standa svona og svona illa miðað við önnur lönd,“ án þess að nefna að sum þessara landa útilokuðu mun hærra hlutfall nemenda frá prófinu. PISA er mikilvægt próf. En alþjóðlegar mælingar eru ekki hafnar yfir úrtök, undanþágur, aðferðafræði og túlkun. Kannski er ein stærsta spurningin í PISA-umræðunni því ekki aðeins: Hvernig stóðu íslensk börn sig í samanburði við önnur lönd? Heldur: Voru forsendurnar þær sömu — hér og annars staðar? Höfundur er atvinnurekandi, faðir og stjórnarmaður í foreldrafélagi Menntaskólans á Akureyri Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein PISA-könnun Mest lesið „Eigðu sjálfur þinn helvítis tjakk!“ Ólafur Hauksson Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Eilífðar smáblóm... Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason Skoðun Reikningsdæmi handa Ögmundi Arnar Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson skrifar Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar Skoðun Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Reikningsdæmi handa Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Eilífðar smáblóm... Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir skrifar Skoðun „Eigðu sjálfur þinn helvítis tjakk!“ Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Komið með skólabörnin í heimsókn á gamla leikskólann Elína Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Að tala tungum tveim Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hver á íslenska fánann? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Huh eða ro? Freyja Rut Emilsdóttir skrifar Skoðun Vaðlaheiðargöng: greiðsluvilji er allt sem þarf Hilmar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liði: mikilvægi þess að ræða við börn um virðingu í samskiptum Arna Hrönn Aradóttir skrifar Skoðun Verum JÁ-kvæð í ágúst Kristján Kristinsson skrifar Skoðun Nágranninn Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir,Sara Margrét Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar
Skoðun Við erum öll í sama liði: mikilvægi þess að ræða við börn um virðingu í samskiptum Arna Hrönn Aradóttir skrifar
Skoðun Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir,Sara Margrét Ólafsdóttir skrifar