Menning

Syndug hjörtu á Rauðasandi

Bókaútgáfan Bjartur gaf út skáldsögu Gunnars Gunnarssonar, Svartfugl, í vikunni.
Bókaútgáfan Bjartur gaf út skáldsögu Gunnars Gunnarssonar, Svartfugl, í vikunni.

Bjartur útgáfa gaf út tvær skáldsögur Gunnars Gunnarssonar, Svartfugl og Aðventu, nú í vikunni. Í tilefni af útgáfu Svartfugls verður boðið upp á menningardagskrá að Saurbæ á Rauðasandi annað kvöld. Dagskráin ber titlinn „Við klukknahljóm syndugra hjarta“.

Svartfugl fjallar um Eyjólf kapelán og ástríðuglæpi Bjarna og Steinunnar á Sjöundá. Sögulegur bakgrunnar hennar eru Sjöundarármorðin, sem teljast eitthvert frægasta morðmál Íslandssögunnar. Sagan Svartfugl er stundum sögð vera fyrsta alvöru íslenska glæpasagan, þar sem réttarrannsókn spinnur söguþráðinn. Í henni er þó jafnframt dregin upp skörp mynd af íslensku samfélagi um aldamótin 1800, stéttaskiptingu þess, blindri réttvísu kirkju, kóngs og embættismanna og harðneskjunni sem alþýðan bjó við.

Á laugardag mun Gunnar Björn Gunnarsson flytja erindi um Svartfugl, og leikararnir Jón Hjartarson, Þorsteinn Gunnarsson og Valgerður Dan lesa valda kafla úr bókinni. Áshildur Haraldsdóttir flautuleikari flytur verkið Lethe eftir Atla Heimi Sveinsson, og séra Sveinn Valgeirsson flytur hugvekju. Jafnframt verður boðið upp á léttar veitingar.

Dagskráin er samvinnuverkefni Bókaútgáfunnar Bjarts, Gunnarsstofnunar og Ferðafélags Íslands. Aðstandendur vekja athygli á góðu tjaldstæði á staðnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.