Menning

Sýning á verkum Nínu

Nína Sæmundsdóttir
Nína Sæmundsdóttir

Á laugardag verður opnuð sýning á verkum listakonunnar Nínu Sæmundson í Sögusetrinu á Hvolsvelli. Jónína Sæmundsdóttir eða Nína eins og hún kallaði sig, var fædd í Nikulásarhúsum í Fljótshlíð 1892. Nínu var aðeins 23 ára þegar hún fékk inni í Tekniske skole í Kaupmannahöfn 1915-16.

Síðan fer hún í Konunglegu listaakademíuna þar sem hún er við nám til 1920. Nína veikist af berklum 1920 og átti við heilsuleysi að stríða um nokkurt skeið. Það stoppaði hana ekki í að fara til Rómar þar sem hún dvaldi í ár og lagði frekari grunn að myndlistarferli sínum.

Henni bauðst að sýna í New York 1926, og eftir það var hún um kyrrt fyrir vestan, fyrst í New York og síðan í Hollywood. Þar bjó hún og starfaði í þrjá áratugi. Í Bandaríkjunum vann hún mörg opinber verkefni og öðlaðist vinsældir sem næmur og fágaður portrettlistamaður.Meðal opinberra verkefna hennar má nefna Afrekshug fyrir Waldorf Astoria hótelið í New York 1931, mynd af Prómeþeif í Los Angeles 1935 og minnisvarða um Leif Eiríksson 1936, einnig í Los Angeles.

Af mannamyndum má nefna portrett af Hedy Lamarr, Peter Freuchen og Vilhjálmi Stefánssyni en hún var virtur portret-málari þar í borg. Nína hélt alltaf íslenskum ríkisborgararétti sínum. Síðustu árin tók hún nokkurn þátt í íslensku listalífi, m.a. með sýningum á höggmyndum og olíumálverkum. Hún lést 1965.

Meðal verka Ninu á Íslandi eru Móðurást í Lækjargötu í Reykjavík. Maríumynd í Selfosskirkju, Rökkur á Sólheimum í Grímsnesi, Ung móðir við Hlíðarendakirkju í Fljótshlíð og Þorsteinn Erlingsson í Þorsteinslundi í Fljótshlíð og Njáll á Sögusetrinu.

Árni Mathiesen opnar sýninguna kl. 14.00 og mun hún standa til 22. september.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.