Upphitun fyrir Miami - Detroit á Sýn annað kvöld 1. mars 2007 20:45 Mikið mæðir á tröllinu Shaquille O´Neal á næstu vikum NordicPhotos/GettyImages
Það verður sannkallaður stórleikur á dagskrá Sýnar klukkan eitt annað kvöld þegar meistarar Miami Heat taka á móti erkifjendum sínum Detroit Pistons í NBA deildinni. Detroit hefur mjög örugga forystu í fyrsta sætinu í Austurdeildinni, en Miami er sem stendur í sjöunda sætinu og þarf nauðsynlega á sigri að halda í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni. Miami verður sem fyrr án síns besta manns, Dwyane Wade, sem fór úr axlarlið á dögunum. Enn hefur ekki verið ákveðið hvort Wade fer í uppskurð strax vegna meiðsla sinna eða ekki - en hann verður frá keppni í að minnsta kosti mánuð engu að síður. Shaquille O´Neal þarf því að draga vagninn fyrir Miami, en hann er nýbyrjaður að spila á ný eftir langa fjarveru vegna hnéuppskurðar. O´Neal skoraði 23 stig í sigri Miami á Washington í síðasta leik, en það er ljóst að mikið mun mæða á miðherjanum hrikalega sem verður 35 ára gamall eftir nokkra daga. Miami hefur unnið 28 leiki og tapað 27 og er alls ekki öruggt með sæti í úrslitakeppninni í vor. Detroit hefur á hinn bóginn gengið allt í haginn á síðustu vikum og hefur liðið fjögurra leikja forskot á liðið í öðru sæti í Austurdeildinni, Washington. Detroit hefur unnið 36 leiki og tapað aðeins 19 og þá hefur liðið verið á mikilli sigurgöngu síðan Chris Webber gekk í raðir liðsins frá Philadelphia. Liðið hefur t.a.m. unnið 9 af síðustu 10 leikjum sínum og 15 af 18 síðan Chris Webber tók stöðu í byrjunarliðinu þann 19. janúar.
NBA Mest lesið Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Fótbolti Byrjaði mótið með enga styrktaraðila og áhyggjur af hótelkostnaði Sport Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks Sport Fleiri fréttir Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Sjá meira