Körfubolti

„Þurfum að bæta varnar­leikinn um­tals­vert“

Hjörvar Ólafsson skrifar
Daníel Andri Halldórsson fer yfir málin með leikmönnum sínum. 
Daníel Andri Halldórsson fer yfir málin með leikmönnum sínum.  Vísir/Pawel

Daníel Andri Halldórsson, þjálfari KR, var sáttur við sóknarleikinn en ósáttur við varnarleikinn þegar lið hans lagði Stjörnuna að velli í fyrstu umferð Bónus-deildar kvenna í körfubolta í kvöld. 

„Það er jákvætt að ná að skora meira en 90 stig en að sama skapi er ég ekki sáttur við varnarleikinn. Við þurfum að gera mun betur þar. Þegar þú spilar ekki betri vörn en við gerðum í kvöld þá er þér refsað í þessari deild,“ sagði Daníel Andri að leik loknum.

„Við erum hins vegar ánægð með að ná að landa sigri og það er ýmislegt sem var jákvætt í frammistöðunni. Tölfræðin lítur að mörgu leyti vel út en við þurfum aftur á móti að fara yfir hlutina á varnarhelmingnum fram að næsta leik,“ sagði Daníel enn fremur.

„Þó svo að við séum með nokkur ný andlit í leikmannahópnum þá afsakar það ekki skort á talanda og ákefð í varnarleiknum. Við munum vinna í þessu og bæta okkur jafnt og þétt. Ég var hins vegar ánægður með stemminguna í stúkunni og þetta var heilt yfir gott kvöld,“ sagði hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×