Houston tryggði sér heimavöllinn 17. apríl 2007 13:38 Tracy McGrady átti stórleik hjá Houston í nótt NordicPhotos/GettyImages
Houston Rockets tryggði sér heimavallarrétt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í NBA í nótt þegar liðið vann góðan sigur á Pheonix Suns 120-117 á heimavelli. Miami tapaði fyrir Boston og missti James Posey í meiðsli. Alls voru átta leikir á dagskrá deildarinnar í nótt. Tracy McGrady skoraði 39 stig, hirti 11 fráköst og gaf 9 stoðsendingar fyrir Houston og Yao Ming skoraði 31 stig og hirti 9 fráköst í sigrinum á Phoenix. Amare Stoudemire skoraði 30 stig fyrir gestina, sem þegar hafa tryggt sér annað sætið í Vesturdeildinni. Miami tapaði fyrir Boston 91-89 þar sem Al Jefferson skoraði sigurkörfu Boston á lokasekúndunni. Miami varð fyrir áfalli þegar James Posey tognaði á úlnið og öxl þegar hann datt illa og óvíst er hve lengi hann verður frá. Delonte West skoraði 28 stig fyrir Boston en þeir Jason Kapono og Jason Williams skoruðu 16 hvor fyrir Miami. "Við verðum tilbúnir í úrslitakeppninni - nú fer alvaran að byrja," sagði Shaquille O´Neal rólegur eftir tapið. Vince Carter var með þrefalda tvennu þegar New Jersey lagði New York á útivelli. Hann skoraði 29 stig, hirti 12 fráköst og gaf 10 stoðsendingar. Steve Francis skoraði 26 stig fyrir New York. Milwaukee lagði Atlanta á heimavelli 102-96, San Antonio hvíldi alla sína bestu menn og tapaði fyrir Memphis 101-91, Denver lagði Minnesota 122-107, Utah valtaði yfir Portland 130-93 og New Orleans skellti Sacramento á útivelli 125-118. Leikið verður í NBA í kvöld og annað kvöld, en þa lýkur deildarkeppninni í NBA og úrslitakeppnin tekur við.
NBA Mest lesið Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Fótbolti Byrjaði mótið með enga styrktaraðila og áhyggjur af hótelkostnaði Sport Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks Sport Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira