Menning

Herbergi fullt af þoku

Gormley í þokukassanum sínum.
Gormley í þokukassanum sínum. MYND/AFP
Breski myndhöggvarinn Antony Gormley heldur nú sýningu á verkum sínum í Hayward safninu í London. Hann er einn af þekktustu bresku myndhöggvurum og sá þekktasti sem er á lífi. Á sýningunni má meðal annars finna risastórt glerhergi sem er fyllt með þoku.

Þokuherbergið kallar hann „Blinding Light" eða blindandi ljós. Hann setti upp stóran glerkassa og ljós efst í hann. Síðan notaði hann rakavélar til þess að búa til þoku í herberginu en hún minnkar skyggnið inn í því til muna.

Hann hefur einnig gert margar höggmyndir og þar á meðal er verk sem kallast „Event Horizon" sem samanstendur af 20 styttum, steyptum í málm, sem standa uppi á þökum húsa í London. Þær snúa allar í áttina að Hayward listasafninu.

Þokuherbergið.MYND/AFP
Þokuherbergið.MYND/AFP
Þokuherbergið.MYND/AFP
Þokuherbergið.MYND/AFP
Þokuherbergið.MYND/AFP
Þokuherbergið.MYND/AFP
Þokuherbergið.MYND/AFP
Þokuherbergið.MYND/AFP
Hérna má sjá leirfígúrur sem Gormley lét þorpsbúa í kínversku þorpi framleiða fyrir sig. Stytturnar eru 180.000 talsins og voru framleiddar á fimm dögum úr einu tonni af rauðum leir.MYND/AFP
Leirstytturnar góðu.MYND/AFP
Leirstytturnar góðu.MYND/AFP
Leirstytturnar góðu.MYND/AFP
Leirstytturnar góðu.MYND/AFP
Leirstytturnar góðu.MYND/AFP
Leirstytturnar góðu.MYND/AFP
Leirstytturnar góðu.MYND/AFP
Gormley gerði einnig höggmyndir á strönd og áttu þær fyrst að vera uppi tímabundið. Þær urðu síðan svo vinsælar að ákveðið var að hafa þær framvegis á ströndinni. Þær horfa allar út á sjóinn.MYND/AFP
Ein af höggmyndum Gormleys.MYND/AFP
Fleiri höggmyndir eftir Gormley. Hver þeirra er um eitt tonn að þyngd og voru allar fyrir framan og í kringum listaháskóla í Lundúnum.MYND/AFP





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.