Íranar vanvirða tímamörk SÞ Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 23. maí 2007 14:57 Íranskar konur mótmæla afskiptum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. MYND/AFP
Íranar hafa ekki einungis hunsað tímamörk öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um að stoppa tilraunir með auðgun úrans. Þeir hafa aukið við kjarnorkuáætlun sína og ganga þannig þvert gegn ályktunum öryggisráðsins. Upplýsingar þess efnis er að finna í skýrslu frá Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni sem fréttastofa Reuters hefur undir höndum. Íranar hafi komið upp sérstökum tækjum í þeim tilgangi að auðga úran. Í skýrslunni segir jafnframt að yfirvöld í Teheran aftri eftirlitsmönnum að fylgjast með kjarnorkustarfseminni. Hunsi Íranar 60 daga tímamörk sem öryggisráðið gaf þann 24. mars síðastliðnum mun það leiða af sér harðari refsingar fyrir landið. Tímamörkin voru sett þegar í ljós kom að Íranar höfðu ekki fylgt tilmælum ráðsins. Nicholas Burns aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna sagði að helstu ríki heims myndu krefjast þess að Íran hætti auðgun úrans. Þau myndu einnig neita málamiðlunartillögu kjarnorkueftirlitsaðila SÞ. Talsmaður Hvíta hússins sagði að með þessu væru Íranar að einangra þjóð sína enn frekar. Vesturlönd óttast að Íranir smíði kjarnorkusprengju í skjóli kjarnorkuáætlunarinnar, sem Íranar segja vera í friðsamlegum tilgangi.
Erlent Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Sjá meira