Viðskipti erlent

Hagnaður Ryanair jókst umfram væntingar

Ein af farþegaþotum Ryanair.
Ein af farþegaþotum Ryanair. Mynd/AFP

Írska flugfélagið Ryanair, eitt stærsta lággjaldaflugfélag í Evrópu, hagnaðist um 401,4 milljónir evra, jafnvirði 34,4 milljarða íslenskra króna, á síðasta rekstrarári, sem lauk í enda mars á þessu ári. Þetta er 33 prósenta aukning á milli ára. Michael O'Leary, forstjóri flugfélagsins, gagnrýndi bresk stjórnvöld hins vegar harðlega vegna hárra stýrivaxta sem hafi komið harkalega við flugfélagið.

Afkoman er yfir væntingum markaðsaðila.

Ástæðan fyrir aukningunni í fyrra var hærri farmiðaverð.

O'Leary sagði háa stýrivexti í landinu, sem eru í sögulegum hæðum, hafa komið illa við flugfélagið, sem hafi orðið að hærra farmiðaverð. Hafi það leitt til þess að flugfarþegar hafi leitað eftir ódýrari flugmiðum. Að sama skapi hafi hátt stýrivaxtastig komið breskum fyrirtækjum illa, að hans sögn.

Stýrivextir í Bretlandi standa í 5,5 prósentum. Greinendur telja að í ljósi mikillar verðbólgu séu miklar líkur á að vextirnir verði hækkaðir meira í sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×