Neytendur

Segir engar breytingar hafa verið gerðar á upp­skrift SS pylsna

Lovísa Arnardóttir skrifar
Forstjóri SS segir engan hafa heimild til að breyta uppskriftinni að SS pylsum.
Forstjóri SS segir engan hafa heimild til að breyta uppskriftinni að SS pylsum. Samsett

Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands, SS, segir fyrirtækið taka það mjög alvarlega ef fólk upplifi einhver frávik í vörum fyrirtækisins. Þónokkrir hringdu inn í Bítið á Bylgjunni í gær til að ræða breytt bragð af pylsunum. Þáttastjórnendur sögðust sjálfir hafa upplifað það líka. 

„Það er enginn sem hefur heimild til að breyta þessari uppskrift. Ekki ég eða ekki neinn,“ segir Steinþór sem fór yfir málið í Bítinu á Bylgjunni í morgun. 

Steinþór segir annað geta haft áhrif, eins og tækjabúnað, en að það hafi engin breyting verið á honum heldur.. Hann segir SS hafa framleitt pylsur frá 1908 og að núverandi uppskrift sé óbreytt frá 1930.

Steinþór segir engin ný tæki tekin í notkun á síðustu mánuðum, það hafi verið teknir nýir reykskápar í notkun fyrir nokkrum árum. Áður hafi reykur verið framleiddur með bruna en með því fylgi ýmis óholl og óæskileg efni. Þá séu tekin úr reyknum óæskileg efni. Því hafi fyrirtækið fyrir tólf árum skipt í fljótandi reyk. Því sé ólíklegt að reykskáparnir séu að valda því að fólk upplifi breytingu á vörunni.

Hann segir auk þess strangt gæðaeftirlit í pylsunum. Til dæmis séu pylsur smakkaðar í hverri lotu áður en þær fara í verslanir og allar pylsur gegnumlýstar með röntgen áður en þær fara í verslanir.

Ekki sjálfur fengið kvartanir

Steinþór segir fyrirtækið vilja vita ef það eru frávik á vörunum og því sé gott að láta vita. Hann hafi ekki sjálfur tekið við neinum kvörtunum vegna pylsnanna. Það sé almennt þannig að fólk hringi annað hvort til að þakka fyrir eða kvarta. Sem dæmi séu margir sem borði 1944 rétti á hverjum degi og hafi sterkar skoðanir á þeim.

Steinþór segir það mikla mýtu að réttirnir séu næringarsnauðir og fullir af óæskilegum efnum.

„En í rauninni er þetta hollara en það sem þú eldar heima hjá þér því við getum leyft okkur að sous vide elda þetta í umbúðum. Við þurfum ekki að sjóða vöruna upp eins og fólk gerir venjulega. Þetta er hægeldun og því eru engin rotvarnarefni í vörunum,“ segir Steinþór en að undantekningin á því séu saltkjötsbollur en í þeim sé nítrít.

Steinþór segir það ekki til umræðu að breyta uppskriftinni að SS pylsum.

„Ef þú átt eitthvað fjöregg. Auðvitað er þetta okkar mikilvægasta vara. Þá leikurðu þér aldrei með hana.“

Ómaklega vegið að Þórarni

Steinþór skrifaði nýlega grein í Morgunblaðið um búvörulögin. Hann sagði aðför að Þórarni Inga Péturssyni þingmanni Framsóknarflokksins ómaklega en nokkuð hefur verið fjallað um eignarhlut hans í Búsæld í tengslum við breytingar á búvörulögunum á síðasta þingi.

Steinþór segir Íslendinga stundum gleyma því að fámennið á Íslandi er svo mikið að við náum varla í meðalborg í Evrópu. Kjötframleiðendur á Íslandi séu að keppa við vaxandi innflutning frá risafyrirtækjum og framleiðendur hafi hingað til ekki mátt vinna saman eða samræma sig. Ný búvörulög heimili það.

„Hún opnar á það og með svipuðum hætti og í mjólkuriðnaðinum. Og hefur sparað um þrjá milljarða á ári,“ segir Steinþór. Bændur og neytendur hafi fengið betri kjör.

Hann segir of mörg sláturhús og afurðarstöðvar á íslandi. Kostnaðurinn hverfi ekki og óhagkvæmur kostnaður þýði hærra verð. Hann skilji samt sem áður áhyggjur af því að út frá lögunum myndist „blokk“ sem fari svo að svína á neytendum og bændum.

SS sé samt sem áður í eigu og sé stjórnað af bændum og því væri ólíklegt að fyrirtækið færi að svína á bændum Ef þeir ætli að taka snúning á neytendum yrði bara meira flutt inn.

„Ég sé ekki þessa hættu,“ segir Steinþór.

Hann segir ómaklega vegið að Þórarni Inga. Það séu ekki nógu margir bændur starfandi á þingi.


Tengdar fréttir

Segir Þórarin Inga hafa niður­lægt þing­ræðið

Dr. Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur hefur sent inn erindi til forsætisnefndar/siðanefndar Alþingis þar sem hann kærir Þórarin Inga Pétursson þingmann Framsóknarflokksins, formann atvinnuvegnefndar vegna afskipta hans af búvörulögum. Þórarinn Ingi megi teljast bullandi vanhæfur til að hafa afskipti af málinu vegna hagsmunatengsla.

Afnám verndartolla í kjölfar breytinga á búvörulögum

Fjármálaráðherra og formaður Framsóknarflokksins fullyrðir að nú standi íslenskir bændur jafnfætis bændum annarra landa. Búvörulögin sem samþykkt voru í mars og leyfa samþjöppun afurðastöðva leiði til hærra afurðaverðs til bænda og lægra verðs til neytenda, þvert á það sem gerist í Noregi og ESB að sögn forstjóra Samkeppniseftirlitsins og fleiri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×