Gæti eignast hálfsystkini sín 3. júlí 2007 11:50
Kanadísk kona hefur fryst egg úr sjálfri sér svo að dóttir hennar, sem er með sérstakan erfðagalla og er ófær um að eignast börn, geti notað þau og eignast börn síðar á lífsleiðinni. Ef stelpan ákveður að nota eggin mun hún í raun eignast hálfbróður sinn eða systur. Töluverð gagnrýni hefur heyrst vegna þessa en læknar segja að móðirin sé aðeins að sýna ást sína og umhyggju í verki. Einnig benda þeir á að dóttirin þurfi ekki að nota eggin móður sinnar, heldur hafi hún aðeins möguleikann á því. Dóttirin er haldin sjaldgæfum sjúkdómi sem heitir Turner heilkenni. Móðirin er 35 ára og ákvað ekki að frysta egg sín fyrr en að vel athuguðu máli. Hún segir að hún hugsi þetta eins og að hún væri að gefa dóttur sinni líffæri, til að mynda nýra. Gagnrýnendur benda hins vegar á að ef dóttirin ákveður að nýta sér egg móður sinnar mun barnið verða systkini móður sinnar og barn ömmu sinnar. Það geti síðan haft ýmsar afleiðingar á geðheilsu þess síðar meir. Einnig segja þeir að hætta þurfi að skilgreina konur og hamingju þeirra út frá barneignarhlutverki þeirra þar sem konur geti vitanlega lifað hamingjusömu lífi án þess að eignast börn.
Erlent Mest lesið Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Erlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Fleiri fréttir Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Sjá meira