Viðskipti erlent

Góður endir á vikunni

Úr kauphöllinni í New York. Fjárfestar þóttu einkar jákvæðir eftir óvæntar fréttir af fasteignamarkaði vestanhafs í gær.
Úr kauphöllinni í New York. Fjárfestar þóttu einkar jákvæðir eftir óvæntar fréttir af fasteignamarkaði vestanhafs í gær.

Fjárfestar í Bandaríkjunum virðast hafa verið bjartsýnni í gær en aðra daga vikunnar en hækkun var á helstu hlutabréfavísitölum við lokun fjármálamarkaða á Wall Street í gær. Tölur viðskiptaráðuneytisins vestra um aukna sölu á nýjum fasteignum í skugga samdráttar á fasteignalánamarkaði og aukin eftirspurn eftir varanlegum neysluvörum er helsta ástæða hækkunarinnar.

Samkvæmt tölum ráðuneytisins jókst sala á nýjum fasteignum um 2,8 prósent í júlí. Þetta eru nokkuð óvæntar niðurstöður enda hafa flestir reiknað með því að slæmar fréttir af fasteignamarkaði vestanhafs ættu enn eftir að koma fram. Breska ríkisútvarpið segir greinendur til dæmis hafa reiknað með samdrætti upp á fjögur prósent í mánuðinum og því hafi niðurstaðan komið þeim mjög á óvart.

Þá sýna tölur ráðuneytisins jafnframt fram á að eftirspurn eftir varanlegum neysluvörum á borð við bíla, varahluti, húsgögn og húsbúnað jókst um 5,9 prósent í síðasta mánuði. Eftirspurnin hefur ekki verið jafn mikil í tíu mánuði og kom greinendum mjög á óvart.

Þessar fréttir urðu til þess að Nasdaq-vísitalan, sem hafði sveiflast beggja vegna núllsins á markaði yfir daginn, hækkaði um tæp 1,4 prósent og endaði í 2.576.69 stigum. Dow Jones-vísitalan hækkaði á sama tíma um 1,08 prósent og endaði í 13.378,87 stigum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×